Tvöföld Vesturgata 45 km
Ráslína
Íþróttahúsið á Þingeyri
Dagsetning
08:00, 20.júlí
Hækkun
1000m
Brautarmet KK
02:54:01
Kári Steinn Karlsson
2016
Brautarmet KVK
04:04:55
Rannveig Oddsdóttir
2022
Um hlaupið
Hlaupið er á Skaganum milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, sem gjarnan er kenndur við Sléttanes eða Svalvoga, stundum kallaður Fjallaskagi en kannski oftast nefndur Vestfirsku alparnir. Fyrir skagann er enginn þjóðvegur en þar er stórmerkilegur og löngu landsþekktur ýtuvegur, einkaframtak Elísar Kjaran á áttunda áratugnum. Rásmark í tvöfaldri Vesturgötu er á Þingeyri. Þaðan verður hlaupið inn Kirkjubólsdal og upp á Álftamýrarheiði. Efsta brún hennar er í 544 m hæð en háheiðin er þó ekki nema nokkrar bíllengdir að lengd. Lækkun hefst því strax aftur og liggur leiðin niður Fossdal að sjó í Arnarfirði og stuttan spöl út að næsta dal, Stapadal. Fyrir neðan Stapadalsbæinn er rásmark í heilli Vesturgötu. Þaðan liggur leið hlaupara úr báðum þessum vegalengdum eftir ýtuvegi Elísar Kjarans út í Lokinhamradal og áfram fyrir Sléttanes að Svalvogum. Nálægt Svalvogum er rásmark í hálfri Vesturgötu. Þaðan er hlaupið að Dýrafjarðarmynni, eftir syllunni í Hrafnholunum inn í Keldudal og þaðan áfram inn Dýrafjörinn að Sveinseyri. Þar er endamark í öllum hlaupunum. Hlaupið er niður brekku í lokin þannig að allir koma í mark af mikilli reisn. Endamark hlaupsins er á Sveinseyri sem er í nokkra km fjarlægð frá Þingeyri. Þar bíða keppenda bæði drykkir og léttar veitingar. Rútur selflytja keppendur eftir þörfum inn á Þingeyri.
Almennar upplýsingar
Drykkjarstöðvar
- Eftir um það bil 6 km, Kirkjubólsdalur
- Eftir um það bil 15 km, í Kvennaskarðinu
- Eftir um það bil 21 km, Stapadal við 24km rásmarkið
- Eftir um það bil 26 km, Lokinhamradalur
- Eftir um það bil 32 km, Sléttanes
- Eftir um það bil 39 km, í mynni Keldudals
- Eftir um það bil 43 km
Á drykkjarstöðvum verður boðið upp á Collab Hydro orkudrykk frá Ölgerðinni og vatn.
ATH að keppendur þurfa að vera með sitt eigið glas.
Brautin
Keppendum er bent á að kynna sér vel hlaupaleiðina, hún er vel merkt með gulum merkingum. Brautarverðir verða á þeim stöðum sem gatnamót eru, leiðbeina keppendum og stoppa umferð.
Rútur
Rútur fara frá Aðalstræti 20, Ísafirði kl. 18.15
Fá fötin í markið
Keppendur eiga að setja það sem þeir vilja að verði farið með í markið í bíl sem verður við startið og verður því komið til baka inn á Ísafjörð við markið.
Skyldubúnaður
- Álteppi, flauta, margnota drykkjarílát (ekki glös á drykkjarstöðvum)
- Jakki
- Orka sem samsvarar a.m.k. 500 kcal
- Mögulegur skyldubúnaður fer eftir veðurspá
- Buff/húfa og vettlingar
- Háir sokkar/kálfahlífar eða síðbuxur
Aldurstakmark
16 ára
Innsýn í stemminguna
Myndir úr fyrri hlaupum
Skilaboð frá hlaupurum
“A review from a customer who benefited from your product. Reviews can be a highly effective way of establishing credibility and increasing your company's reputation.”
Jakob Daníelsson
“Vesturgatan er frábært hlaup. Ég hef prófað allar vegalengdir en ég hef þrisvar tekið þátt í 45 km og er sú vegalengd í uppáhaldi. Hlaupið býður upp á stórfenglegt ferðalag um vestfirska náttúru.”
Katrín Sif Kristbjörnsdóttir
“45 km Vesturgata býður upp á allt sem náttúruunnendur leita eftir; fallega náttúru, stórkostlega hlaupaleið og skemmtilega stemningu í vestfirsku ölpunum. Það er mjög vel staðið að öllu og svo er ekki slæmt að hlaupa þar sem lognið á heima. Þetta er hlaup sem allir ættu að fara í a.m.k. einu sinni.”
Óskar Jakobsson