Hlaupahátíð á Vestfjörðum

Upplýsingar um greiðsluskilmála og almenna skilmála


I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
  2. Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í einstökum greinum á vegum þess, bæði meðan á móti stendur og í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
  3. Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara, heimsfaraldurs eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála fyrir þeim sem hann skráir.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
  7. Mótshaldari sendir þátttakendum tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu.

II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
  2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
  3. Mótshaldarar hafa þátttökugjöld eins lág og mögulegt er og dekki einungis þann kostnað sem til fellur og því eru þátttökugjöld ekki endurgreidd.
  4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  5. Nafnabreyting er heimil en eigi síðar en 2 vikum fyrir að mótið hefst og skal hún tilkynnast til mótshaldara, hlaupahatid@hlaupahatid.is
  6. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, heimsfaraldurs og veðurs, munu greidd þátttökugjöld ekki verða endurgreidd.
  7. Greiðsla fer í gegnum greiðslugátt Rapyd – www.rapyd.net

III. SÉRSKILMÁLAR FYRIR 24 KM VESTURÖGUT OG ÞRÍÞRAUT ÁN RÚTU

  1. Þeir sem skrá sig eiga ekki pláss í rútu sem kemur keppendum í startið í hlaupinu.
  2. Ekki er hægt að fara á biðlista um pláss í rútu.
  3. Keppendur fá, eins og aðrir, rútuferð til baka frá marki til Þingeyrar.
  4. Boðið er uppá ferð í startið frá Þingeyri eftir hlaupið til að sækja bíl sem hefur verið skilinn eftir.