Skálavík 12 km

Ráslína

Íþróttarhúsið í Bolungarvík

Dagsetning

19:00, 19. Júlí 2024

Hækkun

100m

Brautarmet KK

00:50:20
Dagur Benediktsson
2022

Brautarmet KVK

00:54:54
Rannveig Oddsdóttir
2022

Um hlaupið

Hlaupið verður milli bæjarfélaga, frá Bolungarvíkurkaupstað til Ísafjarðar. Hlaupið verður um Óshlíðina en vegurinn þar er aflagður. Óshlíð er mjög brött hlíð milli Hnífsdals og Bolungarvíkur og heitir ysti hluti hennar Óshyrna. Árið 1949 var opnaður vegur um Óshlíð til Bolungarvíkur sem þá fyrst komst í vegasamband. Bolungarvíkurgöng komu árið 2010 í stað vegarins en honum hefur ekki verið haldið við síðan. Frá þeim tíma hefur Óshlíðin mikið verið stunduð sem útivistarsvæði. Vegurinn er malbikaður en hefur látið undan á köflum. Enginn teljandi hækkun er á leiðinni. Vegfarendur þurfa að sýna aðgát því mikið grjóthrun er úr hlíðinni fyrir ofan og eins hefur vegurinn látið mikið á sjá vegna ágangs sjávar og grjóthruns. Hlaupið er næst í gegnum Hnífsdal og þar eftir á malbikuðum göngustíg meðfram Eyrarhlíð áleiðis til Ísafjarðar. Hlaupið endar á Silfurtorgi.

Almennar upplýsingar
  • Efst á heiðinni ca. 6 km

Á drykkjarstöðvum verður boðið upp á Collab hydro orkudrykk frá Ölgerðinni og vatn.

ATH að keppendur þurfa að vera með sitt eigið glas.

Hlaupaleiðina má skoða hér

Keppendum er bent á að kynna sér vel hlaupaleiðina, hún er vel merkt með gulum merkingum. Brautarverðir verða á þeim stöðum sem gatnamót eru, leiðbeina keppendum og stoppa umferð.

Rútur fara frá Aðalstræti 20, Ísafirði kl. 18.15

Keppendur eiga að setja það sem þeir vilja að verði farið með í markið í bíl sem verður við startið og verður því komið til baka inn á Ísafjörð við markið.

Þeir sem að vilja fá drykk á drykkjarstöð verða að vera með margnota glas.

13 ára

Innsýn í stemminguna

Myndir úr fyrri hlaupum

Skilaboð frá hlaupurum

“A review from a customer who benefited from your product. Reviews can be a highly effective way of establishing credibility and increasing your company's reputation.”
Gígja Björnsdóttir
“Þetta hlaup sem byrjar í Skálavík (sem ég kalla Hornstrandir sjóveika mannsins), byrjar sakleysislega en skellir svo framan í mann djöfullegri brekku upp í fjallaskarðið. Það er samt allt þess virði þegar maður getur húrrað sér á hvínandi siglingu niður í Bolungarvíkina. Skógarhlaupið í lokin er rúsínan í pylsuendanum. Frábært hlaup. Fimm spandexbuxur af fimm mögulegum.”
Gylfi Ólafsson
“Skálavíkurhlaupið er skemmtilegt og krefjandi hlaup. Það hefst niður við sjávarmál í Skálavík og þaðan liggur leiðin upp á efsta punkt á Skálavíkurheiði. Á leiðinni eru nokkrar ansi krefjandi brekkur, en árangur erfiðisins er stórkostlegur þegar við manni blasir ægifagurt útsýni yfir Bolungarvíkina. Það er yndislegt að láta sig vaða niður brekkurnar í áttina að markinu með þetta fallega útsýni fyrir framan sig. Mæli með þessu hlaupi.”
Rannveig Halldórsdóttir