Óshlíð 15 km

Ráslína

Íþróttarhúsið í Bolungarvík

Dagsetning

19:00, 19. Júlí 2024

Hækkun

100m

Brautarmet KK

00:54:46
Dagur Benediktsson
2023

Brautarmet KVK

01:03:31
Kristjana Pálsdóttir
2023

Um hlaupið

Hlaupið verður milli bæjarfélaga, frá Bolungarvíkurkaupstað til Ísafjarðar. Hlaupið verður um Óshlíðina en vegurinn þar er aflagður. Óshlíð er mjög brött hlíð milli Hnífsdals og Bolungarvíkur og heitir ysti hluti hennar Óshyrna. Árið 1949 var opnaður vegur um Óshlíð til Bolungarvíkur sem þá fyrst komst í vegasamband. Bolungarvíkurgöng komu árið 2010 í stað vegarins en honum hefur ekki verið haldið við síðan. Frá þeim tíma hefur Óshlíðin mikið verið stunduð sem útivistarsvæði. Vegurinn er malbikaður en hefur látið undan á köflum. Enginn teljandi hækkun er á leiðinni. Vegfarendur þurfa að sýna aðgát því mikið grjóthrun er úr hlíðinni fyrir ofan og eins hefur vegurinn látið mikið á sjá vegna ágangs sjávar og grjóthruns. Hlaupið er næst í gegnum Hnífsdal og þar eftir á malbikuðum göngustíg meðfram Eyrarhlíð áleiðis til Ísafjarðar. Hlaupið endar á Silfurtorgi.

Almennar upplýsingar
  • Við vitann á Óshlíðinni eftir  um það bil 4 km
  • Við upphaf göngustígs meðfram Eyrarhlíðinni eftir um það bil 11 km

Á drykkjarstöðvum verður boðið upp á Collab hydro orkudrykk frá Ölgerðinni og vatn.

ATH að keppendur þurfa að vera með sitt eigið glas.

Brautin verður vel merkt en við viljum biðja keppendur að fara varlega þegar hlaupið er um Óshlíðarveg.

Keppendum er bent á að kynna sér vel hlaupaleiðina, hún er vel merkt með gulum merkingum. Brautarverðir verða á þeim stöðum sem gatnamót eru, leiðbeina keppendum og stoppa umferð.

Rútur fara frá Pollgötu 4, Ísafirði kl. 18.15

Keppendur eiga að setja það sem þeir vilja að verði farið með í markið í bíl sem verður við startið og verður því komið til baka inn á Ísafjörð við markið.

Þeir sem að vilja fá drykk á drykkjarstöð verða að vera með margnota glas.

15 ára

Innsýn í stemminguna

Myndir úr fyrri hlaupum

Skilaboð frá hlaupurum

“Hlauphátíðin er hápunktur sumarsins og mæli ég með fyrir alla að vera með. Óshlíðarhlaupið er gríðarlega skemmtileg nýjung þar sem hlaupið er um hina fögru Óshlíð”
Dagur Benediktsson
“Hlaupahátíðin býður upp á einstakar útsýnisleiðir í bland við mikla stemningu og almenna gleði. Þetta er upplifun sem enginn má láta framhjá sér fara. Mæli hiklaust með!”
Harpa María Friðgeirsdóttir
“15km Óshlíð er fullkomin leið fyrir alla sem vilja hlaupaútrás og upplifa á sama tíma fegurðina, kyrrðina og útsýnið sem hlíðin hefur að geyma. Stemningspartur hlaupsins er litli kríuvarpskaflinn í byrjun - mæli með trjágrein á loft!”
Martha Þorsteinsdóttir