10 km – Hálf Vesturgata

Ráslína

Svalvogavitinn

Hækkun

200m

Dagsetning

13:00, 21. Júlí 2024

Brautarmet KK

00:35:39
Ólafur Austmann Þorbjörnsson
2017

Brautarmet KVK

00:42:23
Sonja Sif Jóhannsdóttir
2017

Um keppnina

Hlaupið er á Skaganum milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, sem gjarnan er kenndur við Sléttanes eða Svalvoga, stundum kallaður Fjallaskagi en kannski oftast nefndur Vestfirsku alparnir. Fyrir skagann er enginn þjóðvegur en þar er stórmerkilegur og löngu landsþekktur ýtuvegur, einkaframtak Elísar Kjaran á áttunda áratugnum. Rásmark í hálfri Vesturgötu er við sjálfan Svalvogavitann. Þaðan er hlaupið að Dýrafjarðarmynni, eftir syllunni í Hrafnholunum inn í Keldudal og þaðan áfram inn Dýrafjörinn að Sveinseyri. Þar er endamark í öllum hlaupunum. Hlaupið er niður brekku í lokin þannig að allir koma í mark af mikilli reisn. Endamark hlaupsins er á Sveinseyri sem er í nokkra km fjarlægð frá Þingeyri. Þar bíða keppenda bæði drykkir og léttar veitingar. Rútur selflytja keppendur eftir þörfum inn á Þingeyri.
Almennar upplýsingar
  • Eftir um það bil 5 km frá rásmarkinu
  • Eftir um það bil 8 km frá rásmarkinu

 

Á drykkjarstöðvum verður boðið upp á Collab hydro orkudrykk frá Ölgerðinni og vatn.

ATH að keppendur þurfa að vera með sitt eigið glas.

Rútur fara frá Íþróttahúsinu Þingeyri kl. 11.00 mæting kl 10.45

Keppendur eiga að setja það sem þeir vilja að verði farið með í markið í bíl sem verður við startið og verður því komið í markið.

  • Margnota drykkjarílát (ekki glös á drykkjarstöðvum)
  • Hvetjum keppendur til að klæða sig eftir veðri

13 ára

Innsýn í stemninguna

Myndir úr fyrri keppnum

Skilaboð frá keppendum

„Vesturgatan er frábær hlaupaleið fyrir alla sem vilja njóta þess besta sem Ísland hefur uppá að bjóða: Vestfirði."
Rafn Helgason
„Fallegasta hlaupið, bara muna að líta upp og njóta umhverfisins og fuglasöngsins". Frekar auðveld leið þrátt fyrir nokkrar brekkur, þar sem hlaupið er eftir malarvegi. Mæli 100% með hlaupinu, öll aðstaða og utanum hald til fyrirmyndar"
Ásta María Sverrisdóttir
"10km Vesturgata er ein fallegasta hlaupaleið landsins, hlykkjóttur vegur í fjallshlíðinni sem býður uppá útsýni í allar áttir. Fullkomin fyrir bæði vana hlaupara en líka þá sem eru að byrja!"
Freydís Halla Einarsdóttir