Núna í ár fagnar Vesturgatan 20 ára afmæli sínu en þetta hlaup fór fyrst fram sumarið 2006. Það varð síðar, ásamt Óshlíðarhlaupinu, hryggjarstykkið í Hlaupahátíð á Vestfjörðum.

Einn af stofnendum Vesturgötunnar var Ingvi Gunnarsson, Ísfirðingur sem lengst af hefur verið búsettur syðra en ætíð sýnt heimahögunum mikla ræktarsemi. Ekki alls fyrir löngu greindist Ingvi með krabbamein í heila og hefur síðan verið í meðferð við meininu bæði hérlendis og erlendis. Það er auðvitað gríðarlega krefjandi að fá svona verkefni upp í hendurnar, verkefni sem enginn myndi kjósa sér að verða þátttakandi í. Í viðbót við allt annað sem Ingvi og fjölskylda hans þurfa að ganga í gegnum þessi misserin þá er svona barátta óhemju dýr.

Vinir og velunnarar Ingva hafa stofnað bakvarðasveit til stuðnings honum og fjölskyldu hans. Hlaupahátíð á Vestfjörðum ætlar að styrkja bakvarðasveitina með því að láta 10% af öllum skráningargjöldum renna til hennar. Ef einhver óskar eftir því að styrkja bakvarðasveitinga enn frekar þá er hægt að gera það  á netskraning.is