Hækkun 200 m

Hlaupið er á Skaganum milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, sem gjarnan er kenndur við Sléttanes eða Svalvoga, stundum kallaður Fjallaskagi en kannski oftast nefndur Vestfirsku alparnir. Fyrir skagann er enginn þjóðvegur en þar er stórmerkilegur og löngu landsþekktur ýtuvegur, einkaframtak Elísar Kjaran á áttunda áratugnum.

Rásmark í hálfri Vesturgötu er við sjálfan Svalvogavitann. Þaðan er hlaupið að Dýrafjarðarmynni, eftir syllunni í Hrafnholunum inn í Keldudal og þaðan áfram inn Dýrafjörinn að Sveinseyri. Þar er endamark í öllum hlaupunum. Hlaupið er niður brekku í lokin þannig að allir koma í mark af mikilli reisn.

Endamark hlaupsins er á Sveinseyri sem er í nokkra km fjarlægð frá Þingeyri. Þar bíða keppenda bæði drykkir og léttar veitingar. Rútur selflytja keppendur eftir þörfum inn á Þingeyri.

Drykkjarstöðvar

  • Eftir um það bil 5 km frá rásmarkinu
  • Eftir um það bil 8 km frá rásmarkinu

Á drykkjarstöðvunum verður boðið upp á Gatorade orkudrykk frá ölgerðinni og vatn. Athugið að keppendur verða sjálfir að vera með sitt glas

Rástími

  • Hlaupið hefst kl. 12.45 við Svalvogsvitann
  • Rútur fara frá Íþróttahúsinu Þingeyri kl. 11.00 mæting kl 10.45
  • Hægt er að skilja auka föt (í töskum) eftir í rútunni

Skyldubúnaður

  • Margnota glas

Aldurstakmarkanir

  • 13 ára

https://itra.run/Races/RaceDetails/Hlaupah%C3%A1t%C3%AD%C3%B0.%C3%A1.Vestfj%C3%B6r%C3%B0um.H%C3%A1lf.Vesturgata/2023/82736