Hlaupahátíð hefur fengið margar ábendingar um að erfiðleikar komi upp þegar greiða eigi fyrir skráningu. Ástæða þess er að villa er í kerfi Mastercard korta og þau kort fara ekki í gegn um greiðsluferlið. Önnur debet- eða kreditkort ganga. Við biðjumst velvirðingar á þessu en því miður er þessi vandi ekki á okkar höndum og við treystum því að Mastercard vinni skjótt og vel að lausn á þessu. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hlaupahatid@hlaupahatid.is og við gefum ykkur nánari upplýsingar um hvernig hægt er að ljúka skráningu með greiðslu.